Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2014 | 10:30

GK: Þorláksmessuskötuveisla á morgun

Hin árlega skötuveisla verður haldin í golfskála Keilis 23.desember 2014 til styrktar unglinga- og afreksstarfi.

Boðið verður upp á hádegismat í tveimur hópum kl.11:30 og kl.12:30.

Vinsamlegast takið fram við bókun hvora tímasetninguna er óskað eftir.

Á boðstólnum er kæst skata fyrir byrjendur og lengra komna, saltfiskur og allt sem þarf til að koma þér í jólaskapið.

Húsið er opið öllum meðan húsrúm leyfir. Miðaverð 3.200 kr.

Vinsamlegast bókið borð í síma Hraunkots 565 33 61 eða á hraunkot@keilir.is

Gleðileg Jól, Unglinga- og afreksstarf Keilis.