Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 4. 2012 | 13:55

GK: Rúnar efstur eftir 1. dag í meistaraflokki – á Meistaramóti Keilis – spilaði á 66 höggum!!!

Rúnar Arnórsson, GK, spilaði glæsilegt golf á Hvaleyrinni á Meistaramóti GK í dag og sýndi enn og sannaði að hann er í framúrskarandi spilaformi.   Skemmst er að minnast að hann sigraði í Opna Heimsferðarmótinu en þá spilaði hann á 69  höggum. Rúnar er efstur í meistaraflokki eftir 1. dag – kom í hús á 66 höggum!!!  Á hringnum fékk Rúnar 6 fugla (á 2., 3., 7., 11., 15. og 16. braut) og 1 skolla, en skollinn kom á 1. braut.

Í 2. sæti, 1 höggi á eftir Rúnari, er Íslandsmeistarinn í höggleik 2011, Axel Bóasson, sem spilaði skollafrítt golf, þ.e. fékk 4 fugla (á 5. 7. 8. og 17. braut) og glæsileg 67 högg staðreynd!

Í 3. sæti varð Dagur Ebenezersson, en hann var einn af 3 í meistaraflokki, sem spilaði Hvaleyrina undir pari í dag, þ.e. á 2 undir pari, 69 höggum.

Staðan eftir 1. dag í Meistaraflokki karla á Meistaramóti Keilis 2012 er annars eftirfarandi:

Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Dagar Alls
Hola F9 S9 Alls Mismunur D1 D2 D3 D4 D5 D6 D7 Alls Mismunur
1 Rúnar Arnórsson GK -1 F 34 32 66 -5 66 66 -5
2 Axel Bóasson GK -2 F 33 34 67 -4 67 67 -4
3 Dagur Ebenezersson GK 2 F 34 35 69 -2 69 69 -2
4 Björgvin Sigurbergsson GK -1 F 34 37 71 0 71 71 0
5 Birgir Björn Magnússon GK 4 F 34 37 71 0 71 71 0
6 Einar Haukur Óskarsson GK 1 F 33 39 72 1 72 72 1
7 Gísli Sveinbergsson GK 3 F 36 36 72 1 72 72 1
8 Sigurþór Jónsson GOS 1 F 36 37 73 2 73 73 2
9 Hjörleifur G Bergsteinsson GK 2 F 37 36 73 2 73 73 2
10 Kristján Þór Einarsson GK -3 F 34 39 73 2 73 73 2
11 Ingi Rúnar Gíslason GK 0 F 38 36 74 3 74 74 3
12 Steinn Freyr Þorleifsson GK 4 F 39 37 76 5 76 76 5
13 Ísak Jasonarson GK 3 F 38 39 77 6 77 77 6
14 Ólafur Þór Ágústsson GK 4 F 38 39 77 6 77 77 6
15 Ágúst Ársælsson GK 4 F 38 41 79 8 79 79 8
16 Helgi Runólfsson GK 1 F 39 41 80 9 80 80 9
17 Benedikt Sveinsson GK 4 F 43 40 83 12 83 83 12