GK: Risapáskapúttmót Hraunkots
Um páskana verður haldið púttmót í Hraunkoti. Verðlaun eru óvenju glæsileg, allt frá golfkúlum upp í utanlandsferð.
Fyrikomulag verður þannig að föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag geta allir komið og tekið þátt, spilað tvo hringi, þar sem betri hringurinn telur. Hver og einn getur keypt eins marga hringi og hann vill. Þátttökugjald aðeins kr. 500 per hring. Heitt á könnunni.
Vinningar eru m.a. utanlandaferð með Icelandair til Evrópu, úttektir hjá Epli.is, pútter, flísjakkar (barna) frá Zo-on, hanskar, lúffur, peysur, inneign í golfbúð Keilis, Titleist húfur, boltakort í Hraunkot, golfkennsla hjá Sigga Palla, golfkennsla hjá Jóa Hjalta, golfboltar, handklæði, skorkortaveski o.fl.
Eftirfarandi verðlaun eru veitt í risapáskapúttmótinu:
1. sæti Wishon golf pútter frá Keisaranum.
2. sæti Golfkennsla hjá Sigga Palla.
3. sæti 30.000 kr hjá epli.is
4. sæti Titleist derhúfa og Titleist Pro-v1
5. sæti Inneign í golfbúð keilis 10.000 kr
6. sæti Platínukort frá Hraunkoti.
7. sæti Gullkort frá Hraunkoti.
13. sæti Flugmiði til Evrópu fyrir einn frá Icelandair.
18. sæti 20.000 kr inneign hjá epli.is
19. sæti 10.000 kr inneign hjá epli.is
27. sæti Golfkennsla hjá Jóa Hjalta PGA golfkennara.
37. sæti Golfhanski, boltar og handklæði merkt Callaway.
47. sæti Regnhlíf merkt Ping.
48. sæti Lúffur merktar Ping
50. sæti Gullkort frá Hraunkoti.
Einnig verða dregin út 5 nöfn keppenda sem fá glæsileg verðlaun.
Aukaverðlaun fyrir flesta ása á hring. Góu risa páskaegg fyrir besta hring dagsins.
Opnunartími Hraunkots yfir páskana er eftirfarandi:
Skírdag – fimmtudaginn 28. mars kl. 12:00-18:00
Föstudaginn langi – föstudagur 29. mars kl. 12:00-18:00
Laugardagurinn 30. mars kl. 10:00-19.00
Páskadagur – sunnudaginn 31. mars kl. 10:00-18:00
Annar í páskum – mánudaginn 1. apríl kl. 10:00-20:00
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
