GK: Malai og Jóhannes sigruðu á Opna Subway
Opna Subway mótið 2016 var haldið í dag á Hvaleyrarvelli. Eins og oft áður er alltaf byrjað að tala um veðrið, sem var reyndar með ágætum í dag. Fyrir hádegi var smá íslenskur suddi og eftir hádegi var komið flott golfveður. Greinilega stór dagur hjá mörgum og sást það í fjölda keppanda sem var rétt um 100 manns. Kosningar og 16 liða úrslit í EM2016 freistuðu greinilega marga kylfinga. Golfklúbburinn Keilir þakkar þeim sem lögðu leið sína í dag til okkar og var ekki annað að heyra en allir væru kátir með daginn. Við þökkum að sjálfsögðu Subway á Íslandi fyrir að styrkja þetta mót með glæsilegum vinningum og nándarverðlaunum. SUBWAY® er alþjóðleg keðja með yfir 40 þúsund veitingastaði í rúmlega 100 löndum. Stjarnan ehf. rekur 23 Subway veitingastaði á Íslandi sem staðsettir eru víða um land.
Helstu úrslit urðu eftirfarandi:
Punktakeppni
1. sæti Malai Rattanawiset GKB 45 punktar
2. sæti Jóhannes Guðmundsson GR 38 punktar
3. sæti Sverrir Haraldsson GM 38 punktar
4. sæti Stefán Atli Hjörleifsson GK 37 punktar
5. sæti Vignir Kristmundsson GKG 36 punktar
Höggleikur
Besta skor Jóhannes Guðmundsson GR 71 högg
Nándarverðlaun
4. braut Hjörtur Ingþórsson GR 11 cm
6. braut Hjalti Már Þórisson GR 2,44 m
10. braut Patrekur Nordquist Ragnarsson GR 3,35 m
16. braut Örn Baldursson NK 2,55 m
Aukaverðlaun
Næstur holu í 2 höggum 9. braut Þorsteinn Kristján Ragnarsson GO 64cm
Lengsta teighögg 13. braut Patrekur Nordquist Ragnarsson GR
Vinningar opna Subway mótið 2016
Veitt voru verðlaun fyrir 5 efstu sætin í punktakeppni og fyrir besta skor:
1. sæti: 80.000 króna Ferðavinningur frá Úrval útsýn.
2. sæti: 50.000 króna Ferðavinningur frá Úrval útsýn.
3. sæti: 40.000 króna Ferðavinningur frá Úrval útsýn.
4. sæti: 30.000 króna Ferðavinningur frá Úrval útsýn.
5. sæti: 25.000 króna Ferðavinningur frá Úrval útsýn.
Besta skorið: 80.000 króna gjafabréf frá Úrval útsýn.
Golfskór í nándarverðlaun á öllum par 3 brautum vallarins.
Nándaverðlaun á 9 braut, næstur holu í 2 höggum.
Verðlaun fyrir lengsta teighöggið á 13 braut.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
