GK: Hafsteinn og Geirþrúður sjá um veitingarnar hjá Golklúbbnum Keili
Nú á dögunum skrifaði Formaður Keilis Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir fyrir hönd stjórnar Keilis undir nýjan samning við 220 First Edition um leigu á veitingaraðstöðu Keilis. Hafsteinn og Geirþrúður sem eiga 220 First Edition hafa mikla reynslu af rekstri í veitingageiranum, komu þau að stofnun og rekstri á Krydd veitingarhúsi í Hafnarborg og reka nú Betri Stofuna á 7. hæðinni í Firði verslunarmiðstöð. Munu þau taka við rekstri skálans 1. maí n.k
Hafsteinn og Geirþrúður við undirskriftina:
„Við hlökkum mikið til að taka við rekstri veitingasölunnar og viðhalda þeim góða orðstír sem þekktur er á þessum rekstri. Okkar aðaláhersla verður gott hráefni, góð verð og þjónustu við félagsmenn og gesti Keilis. Talsverðar nýjungar verða á boðstólnum og verður gaman að heyra og sjá hvernig félagsmenn og gestir Keilis munu taka í þær.”
Guðbjörg Formaður Keilis sagði:
„Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur í Keili, veitingasalan er stór partur af félagsstarfi okkar og má segja þungamiðjan í því. Okkur list vel á þær breytingar sem kynntar hafa verið og verður spennandi að heyra álit félagsmanna og gesta á komandi sumri.”
Félagsmenn meiga því eiga von á skemmtilegum nýjungum sem verða kynntar betur fyrir tímabilið.
Um leið og við óskum þeim Hafsteini og Geirþrúði alls velfarnar þá hlökkum við mikið til að njóta samverunnar og veitinganna í sumar.
Aðalmyndagluggi: Frá undirskrift samnings GK við Geirþrúði og Hafstein. Mynd: GK
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
