Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2014 | 22:15

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá í 1. sæti e. 1. hring á Fresno State Classic

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, og golflið Fresno State, the Bulldogs hófu í dag leik á Fresno State Classic.

Gestgjafi mótsins er háskóli Guðrúnar Brár Fresno State. Þátttakendur eru 28 frá 5 háskólum.

Mótið fer fram dagana 6.-7. október 2014 og leikið er í San Joaquin Country Club 3484 W. Bluff Avenue, Fresno, Kaliforníu – 2 hringir fyrri dag og 1 hringur seinni dag.

Guðrún Brá lék 1. hring á 1 undir pari 71 höggi.  Á hringnum fékk Guðrún Brá 2 fugla og 1 skolla og er í 1. sæti mótsins. Glæsilegt hjá Guðrúnu Brá!!!

Annar hringurinn er þegar hafinn.

Til þess að fylgjast með gengi Guðrúnar Brár og Fresno SMELLIÐ HÉR: