Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2014 | 10:00

GK: Framhaldsskólanemum boðið á æfingasvæðið

Á heimasíðu Keilis er frétt um að klúbburinn hafi boðið framhaldsskólanemum sem eru í verkfalli frítt á æfingasvæðið. Það er um að gera fyrir nemendur í verkfalli að nýta sér þetta góða boð og losa sig þar með við stress og ama sem verkfallið veldur þeim og eins til þess að æfa sveifluna fyrir sumarið.

Hér er frétt Keilis um ofangreint:

„Golfklúbburinn Keilir hefur ákveðið að bjóða framhaldsskólanemum sem eru í verkfalli að koma á æfingasvæði Keilis á meðan verkfalli stendur. Með þessu vill Keilir sýna samfélagslega ábyrgð og styðja þolendur verkfalls. Nemendur geta komið virka daga á milli 09:00 – 12:00 í afgreiðslu Hraunkots og nýtt sér æfingasvæði Keilis. Hver nemandi getur fengið 1 token sem samsvarar 600 kr og æft sig að slá. Hraunkot getur lánað þeim nemendum kylfur ef þeir eiga ekki slíkan búnað. Einnig stendur til boða að koma inn og nýta sér glæsilega inniaðstöðu Hraunkots. Golfklúbburinn Keilir hvetur alla nemendur til að nýta sér þetta tækifæri og sérstaklega eru nýliðar velkomnir.

Þá er bara að mæta og slá í gegn.“