Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2016 | 15:00

GK: Arnar endurkjörinn formaður

Fjörutíu félagar mættu á aðalfund Keilis sem haldinn var í golfskálanum í gærkvöldi, 14. desember en Lúðvík Geirsson stýrði fundinum af mikilli röggsemi.

Helstu rekstrarniðurstöður voru að hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 22.4 m.kr og hagnaður ársins nam 4 m.kr. Félögum fjölgaði svo á milli ára um 13.

Skýrsla stjórnar og ársreikning Keilis 2016 má sjá með því að SMELLA HÉR: 

Stjórn Keilis var eftirfarandi kjörin fyrir árið 2017:

Formaður: Arnar Atlason
Fyrir í aðalstjórn til eins árs: Davíð Arnar Þórsson, Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir og Daði Janusson
Aðalstjórn til tveggja ára: Sveinn Sigurbergsson, Guðmundur Óskarsson og Ellý Erlingsdóttir