Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2014 | 18:00

GK: Áramótapúttmót Hraunkots Gamlársdag frá kl. 10-15

Þá er komið að hinu árlega Áramótapúttmóti Hraunkots sem fer fram á Gamlársdag.

Byrjað verður að pútta klukkan 10:00 og verður opið til klukkan 15:00.

Glæsileg verðlaun í boði einsog ávallt.

Aukaverðlaun fyrir flesta ása, flest þrípútt og flesta tvista.

Stinni verður með kaldan á kanntinum og allt fljótandi í snakki og ídýfum.

Leiknir verða tveir 18 holu pútthringir og telur betri hringurinn í mótinu.

GK hvetjur alla kylfinga til að koma og klára golfárið í Hraunkoti.

Þátttökugjald einungis 700 krónur.

Einnig verður golfskálinn opin fyrir þá sem vilja setjast niður og fara yfir golfsumarið. Kveðja starfsfólk Hraunkots.