Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2012 | 18:00

GK: Aðalfundur Golfklúbbsins Keilis fer fram í kvöld kl. 19:30

Þá er komið að árlegum aðalfundi golfklúbbsins Keilis fyrir starfsárið 2012. Fundurinn verður haldinn í kvöld, mánudaginn 10. desember klukkan 19:30 í Golfskálanum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
4. Stjórnarkosning
5. Kosning endurskoðenda
6  Kosning fulltrúa og varafulltrúa í samtök, sem Keilir á aðild að
7. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2013
8. Önnur mál

Útkoma úr viðhorfskönnun Keilis verður kynnt á fundinum.

Heimild: GK