Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2018 | 17:00

Gísli T-7 á St. Andrews Links Trophy e. 1. dag

Þrír íslenskir kylfingar þeir Aron Snær Júlíusson, GKG; Bjarki Pétursson, GB og Gísli Sveinbergsson, GK taka þátt í St. Andrews Links Trophy, en mótið fer fram í vöggu golfsins á St. Andrews, dagana 8.-10. júní 2018.

Gísli  átti frábæran 1. hring, lék New Course á 69 glæsihöggum, þ.e. 3 undir pari og er T-7 e. 1. dag.

Aron Snær er T-47, en hann lék 1. hringinn á sléttu pari, 72 höggum.

Bjarki lék á 4 yfir pari, 76 höggum og er T-113 eftir 1. hring.

Sjá má stöðuna eftir 1. hring á St. Andrews Links Trophy með því að SMELLA HÉR: