Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2014 | 08:00

Gísli Sveinbergs hefur leik á South Beach Intl. Amateur í dag

Gísli Sveinbergsson, afrekskylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði hefur í dag leik á South Beach International Amateur í Miami, Flórída.

Leikið er í Miami Beach golfklúbbnum og Normandy Shores golfklúbbnum. Mótið stendur dagana 17.-22. desember 2014.

Þann 27.-30. desember 2014 tekur Gísli síðan þátt í Orange Bowl golfmótinu, í Miami, sem er gríðarlega sterkt áhugamannamót, en meðal fyrrum sigurvegara eru t.a.m. franski kylfingurinn Romain Wattel, sem nú spilar á Evrópumótaröðinni og Lexi Thompson, sem spilar á LPGA en þau sigruðu á mótinu 2010.

Eins mætti geta sigurvegaranna frá því í fyrra, 2013: kanadíska kylfingsins Brooke Henderson,17 ára, sem er nýorðin atvinnukylfingur og ítalska kylfingsins Renato Paratore, sem m.a. sigraði Harald okkar Franklín Magnús, GR í Opna breska áhugamannamótinu í 16 manna úrslitum 2013 og sigraði á Ólympíuleikum ungmenna í golfi, en mótið fór fram í Nanjing í Kína s.l. sumar þ.e.  19.-28. ágúst 2014.  Paratore er jafnframt sá 3. yngsti í sögu Evrópumótar- raðarinnar til þess að komast á Evrópumótaröðina í gegnum Q-school, en Paratore flaug í gegn varð í 3. sæti í lokaúrtökumótinu og spilar nú á Evrópumótaröðinni, keppnistímabilið 2014-2015.

Á Orange Bowl eru  þátttakendur ævinlega sterkustu kylfingar hverrar þjóðar og mótið því eitt öflugasta áhugamannamót í heimi.

Verður sérlega gaman að fylgjast með sigurvegara Duke of York 2014, þ.e. Gísla þar, en hann hefir verið að gera frábæra hluti í mótum erlendis í ár!

Til þess að fylgjast með gengi Gísla á South Beach International Amateur SMELLIÐ HÉR: