Gísli Sveinbergsson, GK. Mynd: gsimyndir.net Gísli náði einn íslensku keppandanna niðurskurði á St. Andrews Links Trophy
Gísli Sveinbergsson, GK var sá eini af íslensku keppendunum þremur, sem náði niðurskurði á St. Andrews Links Trophy.
Þrír íslenskir kylfingar þeir Aron Snær Júlíusson, GKG; Bjarki Pétursson, GB og Gísli Sveinbergsson, GK, hófu keppni í gær á St. Andrews Links Trophy, en mótið fer fram í vöggu golfsins á St. Andrews, dagana 8.-10. júní 2018.
Leikinn var New Course (par-71) fyrri daginn og Old Course (par-72) síðari daginn.
Gísli lék annan hringinn á Old Course á 1 yfir pari, 73 höggum og var því samtals á 1 undir pari, 142 höggum (69 73).
Bjarki stórbætti leik sinn á 2. hring, lék á frábærum 3 undir pari 69 höggum, en það dugði því miður ekki til. Hann náði ekki niðurskurði.
Einungis 40 efstu og þeir sem jafnir voru í 40. sætinu komust gegnum niðurskurð og var Bjarki T-62 eftir 2. dag, en hann fór upp um heil 51 sæti frá 1. degi, sem eyðilagði fyrir honum keppnina en þá lék Bjarki New Course á 5 yfir pari, 76 höggum og var því samtals á 2 yfir pari, 145 höggum (76 69). Aðeins þeir sem léku á samtals pari eða betur náðu niðurskurði.
Aroni Snæ gekk ekki vel á Old Course í dag, lék hann á 5 yfir pari 77 höggum og var því samtals á 6 yfir pari, 149 höggum (72 77) og úr leik.
Frá því að St. Andrews Links Trophy hóf göngu sína 1989, hafa ávallt bestu áhugamenn heims tekið þátt í því – menn sem síðar hafa náð frama á golfsviðinu – menn á borð við Ernie Els, Lee Westwood, Trevor Immelman, Geoff Ogilvy, Padraig Harrington, Justin Rose og Rory McIlroy.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
