Gísli Sveinbergsson, GK. Mynd: Golf 1 Gísli T-4 í Orange Bowl e. 3. dag
Gísli Sveinbergsson, afrekskylfingur úr Golfklúbbnum Keili, A-landsliðsmaður, Íslandsmeistari í höggleik í piltaflokki 2014 og sigurvegari á Duke of York 2014 erí 4. sæti á Boys Junior Orange Bowl Championship e. 3. dag mótsins, sem fram fer að venju á golfvelli Biltmore hótelsins í Coral Gables, Miami.
Gísli er samtals búinn að spila á 1 undir pari, 212 höggum (73 67 72).
Hann hefir bætt sig með hverjum hring; byrjaði á að vera í 30. sæti af 52 keppendum eftir 1. dag; eftir 2. hring og glæsispilamennsku upp á 4 undir pari, 67 högg var komst Gísli í 6. sæti og nú í dag fór hann enn upp á við í 4. sætið, sem hann deilir með þeim Ivan Ramirez frá Kólombíu og Tony Gil frá Kanada, örugglega nöfn sem við eigum eftir að heyra meira af í framtíðinni!!!
Efstir í mótinu eftir 3. dag eru þeir Alejandro Tosti frá Argentínu og Joaquin Niemann frá Chile báðir á samtals 3 undir pari, hvor – aðeins 2 höggum betri en Gísli og í 3. sæti er sem stendur heimamaðurinn Carl Yuan, frá Flórída á 2 undir pari.
Þetta sýnir svo ekki verður um villst að Gísli á heima meðal þeirra allra bestu í heimi. Stórglæsilegur árangur og vonandi að áframhald verði á!!!
Sjá má með stöðuna e. 3. dag á Boys Junior Orange Bowl Championship með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
