
Girls U16 Amateur: Perla Sól varð T-6 og Helga Signý í 77. sæti
Helga Signý Pálsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir kepptu báðar á áhugamannamóti R&A fyrir stúlkur yngri en 16 ára (Girls U16 Amateur Championship) sem fram fór á Englandi dagana 22.-24. apríl 2022 og lauk í dag.
Mótið var sett á laggirnar árið 2018 og að þessu sinni var keppt á Enville golfsvæðinu skammt frá Birmingham á Englandi.
Alls voru 90 keppendur og komu þeir frá fjölmörgum löndum víðsvegar úr heiminum.
Keppnisfyrirkomulagið mótsins er 54 holu höggleikur en R&A setti mótið á laggirnar til þess að búa til verkefni fyrir efnilegustu kylfingana í stúlknaflokki yngri en 16 ára.
Perla Sól og Helga Signý eru báðar úr Golfklúbbi Reykjavíkur og hafa verið í fremstu röð í sínum aldursflokki undanfarin misseri.
Á mótinu varð Perla Sól T-6 lék á samtals 11 yfir pari, 227 höggum (77 75 75).
Helga Signý varð í 77. sæti; lék á samtals 43 yfir pari, 259 höggum (87 88 84).
Sjá má lokastöðuna á Girls U16 Amateur Championship með því að SMELLA HÉR:
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jens Gud ———-– 8. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 01:00 PGA: Keegan Bradley efstur f. lokahring Wells Fargo
- maí. 8. 2022 | 00:01 LET: Ana Pelaez í forystu f. lokahring Madrid Open
- maí. 7. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (19/2022)
- maí. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
- maí. 7. 2022 | 12:30 Norman neitað um undanþágu til að spila á Opna breska
- maí. 7. 2022 | 06:45 PGA: Day leiðir e. 2. dag Wells Fargo
- maí. 7. 2022 | 06:00 LET: Koivisto efst e. 2. dag Madrid Open
- maí. 6. 2022 | 23:00 NGL: Bjarki bestur íslensku kylfinganna á Barncancerfonden Open
- maí. 6. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Long í forystu e. 2. dag á The Belfry
- maí. 6. 2022 | 18:00 Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur Kristins íþróttakona ársins hjá EKU
- maí. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Dean Larsson – 6. maí 2022