Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 00:30

GÍ: Golfveisla á Tungudalsvelli – Emil Þór m/nýtt vallarmet!!!

H.G. mótinu í golfi lauk í gær, 19. ágúst 2018 á Tungudalsvelli, á Ísafirði. eftir tveggja daga keppni vestfirskra kylfinga í einmuna blíðu, sunnan þey og sólskini. Með því lýkur Sjávarútvegsmótaröðinni í golfi, sem er samstarfsverkefni Golfklúbba á Vestfjörðum og sjávarútvegsfyrirtækja í fjórðungnum. Haldið var upp á lokin með veislu í Golfskálanum í Tungudal þar sem sigurvegurum í H.G. mótinu og í Sjávarútvegsmótaröðinni var fagnað. Emil Þór Ragnarsson setti nýtt vallarmet á Tungudalsvelli í gær.

Sigurvegarar í höggleik í H.G. mótinu voru; í karlaflokki sigraði Emil Þór Ragnarsson, Anna Guðrún Sigurðardóttir sigraði í kvennaflokki og Jón Gunnar Shiransson í unglingaflokki. Með forgjöf sigraði Emil Þór Ragnarson með 38 punkta og í kvennaflokki sigraði Valdís Hrólfsdóttir með 32 punkta.

Emil Þór Ragnarsson setti nýtt vallarmet á Tungudalsvelli í dag, fór 18 holurnar á 67 höggum.

Sigurvegarar Sjávarútvegsmótaraðarinnar voru; Janus Pawel Duszak í karlaflokki, Björg Sæmundsdóttir sigraði í kvennaflokki, Kristinn Þórir Kristjánsson sigraði í öldungaflokki og Jón Gunnar Shiransson í unglingaflokki.

Á laugardaginn kemur verður Landsbankamótið haldið á Tungudalsvelli.

Mynd og texti: Bæjarins Besta