Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2017 | 09:00

GHG: Einar Lyng ráðinn rekstrarstjóri og golfkennari

Einar Lyng PGA golfkennari hefur verið ráðinn sem rekstrarstjóri og golfkennari GHG.

Þetta kemur fram á heimasíðu GHG.

Einar útskrifaðist 2009 sem PGA golfkennari og hefur starfað við það síðan sem íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Mosfellsbæar og nú síðast hjá Golfklúbbnum Leyni.

Einar er einnig að mörgum kunnur úr ferðabransanum en þar hefur hann starfað sem fararstjóri og golfkennari siðastliðin 18 ár.

Golf 1 óskar Einari til hamingju með nýju stöðuna!