GHD: Ólöf Maria Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2015!
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2015 er Ólöf María Einarsdóttir.
Í tilefni lýsingar á kjöri á íþróttamanni Dalvíkurbyggðar bauð íþrótta- og æskulýðsráð til mannfagnaðar þriðjudaginn 5. janúar í Bergi menningarhúsi.
Auk þess að lýsa kjöri á íþróttamanni Dalvíkurbyggðar veitti íþrótta- og æskulýðsráð styrki úr Afreks- og styrktarsjóði og undirritaði styrktarsamninga við íþróttafélög í Dalvíkurbyggð sem gilda næstu fjögur árin.
Styrki úr Afreks- og Styrktarsjóði hlutu eftirfarandi; Bríet Brá Bjarnadóttir, Guðfinna Eir Þorleifsdóttir, Helgi Halldórsson, Arnór Snær Guðmundsson, Ólöf María Einarsdóttir, Hjörleifur H. Sveinbjarnarson, Viktor Hugi Júlíusson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir. Að auki fengu Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS, Golklúbburinn Hamar, Skíðafélag Dalvíkur og Hestamannafélagið Hringur styrk til að halda úti fræðsluakademíu fyrir ungt íþróttafólk í Dalvíkurbyggð.
Tilnefndir til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2015 voru Anna Kristín Friðriksdóttir Hestmannafélaginu Hring, Andra Björk Birksidóttir Skíðafélagi Dalvíkur, Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson Sundfélaginu Rán og Ólöf María Einarsdóttir Golfklúbbnum Hamri.
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2015 er Ólöf María Einasdóttir kylfingur í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík.
Ólöf, sem er 16 ára, varð íslandsmeistari í höggleik í 15-16 ára aldursflokki og Íslandsmeistari í sveitakeppni 16-18 ára. Ólöf er í afrekshópi Golfsambands Íslands. Einnig tók hún þátt í fjölda móta með góðum árangri. Ólöf tók þátt í tveimur mótum erlendis og stóð sig mjög vel og var klúbbnum sínum og landi til sóma á þeim ferðum hvað varðar hegðun og háttvísi.
Í umsögn segir að Ólöf stundi æfingar mjög vel og æfi mikið aukalega utan hefðbundins æfingatíma. Hún er mikil og góð keppnismanneskja sem gefur mikið af sér við þjálfun krakkana í klúbbnum og er þeim góð fyrirmynd.
Golf 1 óskar Ólöfu María innilega til hamingju með heiðurstitilinnn Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar – enda vel að honum komin!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
