GG: Styrktarmót á bestu flötum landsins
Sveit Golfklúbbs Grindavíkur mun halda styrktarmót á morgun laugardaginn 6. september til að standa straum af kostnaði við þátttöku í sveitakeppni GSÍ fyrr í sumar. Sveit GG náði sínum besta árangri frá upphafi þegar sveitin hafnaði í fjórða sæti í 2. deild sem leikin var á Kiðjabergsvelli.
Styrktarmótið fer fram á laugardag á Húsatóftavelli í Grindavík og verður leikið með Texas Scramble leikfyrirkomulagi. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir efstu sex sætin í mótinu og jafnframt verða veitt nándarverðlaun á öllum par-3 brautum vallarins.

Sveit GG
Völlurinn sjaldan verið betri
„Húsatóftavöllur hefur sjaldan verið í betra ásigkomulagi. Flatirnar hafa verið frábærar í sumar en líta einstaklega vel um þessar mundir. Margir þeirra sem leika völlinn segja flatirnar vera þær bestu á Íslandi,“ segir Halldór Einir Smárason, formaður Golfklúbbs Grindavíkur.
„Þetta er þriðja árið sem Húsatóftavöllur er leikinn sem 18 holu golfvöllur og er farinn að festa sig í sessi. Völlurinn hefur verið vel sóttur í sumar og þá sérstaklega af kylfingum frá höfuðborgarsvæðinu. Við hvetjum kylfinga til að koma í heimsókn til okkar í haust og sannreyna það hvort þetta séu bestu flatir landsins.“
Glæsileg verðlaun
Það eru svo sannarlega glæsileg verðlaun í styrktarmótinu. Veitt verða gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði fyrir efstu sex sætin. Nándarverðlaun verða á öllum par-3 brautum vallarins og einnig fyrir lengsta teighöggið á 11. braut. Nánari upplýsingar um verðlaun verða kynnt síðar.
1. sæti – 2x 35.000 kr.- gjafabréf frá Golfbúðinni
2. sæti – 2x 25.000 kr.- gjafabréf frá Golfbúðinni
3. sæti – 2x 20.000 kr.- gjafabréf frá Golfbúðinni
4. sæti – 2x 15.000 kr.- gjafabréf frá Golfbúðinni
5. sæti – 2x 10.000 kr.- gjafabréf frá Golfbúðinni
6. sæti – 2x 7.500 kr.- gjafabréf frá Golfbúðinni
Skráning er hafin á Golf.is og verður ræst út frá kl. 08:00 til 14:00. Veðurspáin lítur vel út og stefnir í frábæra golfhelgi á Húsatóftavelli í Grindavík.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
