Sigurvegarar á meistarmóti GG 2016
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2016 | 20:00

GG: Kristinn og Svanhvít klúbbmeistarar 2016

Kristinn Sörensen og Svanhvít Helga Hammer urðu klúbbmeistarar Golfklúbbs Grindavíkur en meistaramót GG fór fram dagana  4.-9. júlí 2016.

Þátttakendur í ár voru 57 og keppt var í 9 flokkum (þ.m.t. unglingaflokkur).

Kristinn varð klúbbmeistari karla eftir þriggja holu umspil við Jón Valgarð Gústafsson. Þeir voru jafnir eftir 72 holur á 303 höggum. Svanhvít Helga Hammer er klúbbmeistari kvenna á 264 höggum (3 dagar)

Í öðrum flokkum voru eftirfarandi sigurvegarar:
1. flokkur Helgi Jónas Guðfinnsson 314 högg
2. flokkur Atli Kolbeinn Atlason 332 högg
3. flokkur Jón Þórisson 360 högg
4. flokkur Jón Gauti Dagbjartsson 404 högg

Heldri konur: Margrét Brynjólfsdóttir 299 högg (3 dagar)
Öldungaflokkur karla: Sveinn Þór Ísaksson 223 högg (3 dagar)

Unglingaflokkur: Bragi Guðmundsson, 136 (3 x 9 holur)