Frá Selsvelli á Flúðum einum uppáhaldsgolfvalla Jóhannesar á Íslandi. GF: Aðalfundur 19. febrúar n.k.
Golfklúbburinn Flúðir boðar til aðalfundar föstudaginn 19. febrúar. Þetta kemur fram á klúbbasíðu GF. Aðalfundurinn hefst kl. 20:00 í golfskálanum í Efra Seli
Dagskrá fundarins er skv. 6 gr. laga GF:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
3. Skýrslur nefnda.
4. Kosning fulltrúa og varafulltrúa í þau samtök sem klúbburinn er aðili að.
5. Lagabreytingar.
6. Kosningar samkvæmt 5. gr
7. Fjárhagsáætlun næsta árs afgreidd.
8. Önnur mál.
Tillögur um breytingar á lögum félagsins eða önnur mál sem taka á upp til
umræðu á aðalfundi og varða grundvallaratriði í rekstri félagsins, skulu berast stjórn félagsins a.m. k. 3 dögum fyrir boðaðan aðalfund og skal stjórnin birta tillögurnar á heimasíðu félagsins og eftir atvikum kynna þær sérstaklega með rafpósti eða á annan sambærilegan hátt.
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum verður slegið á léttari strengi og mun formaður vera í fararbroddi með ýmsar viðurkenningar og fleira. Sýndar verða myndir af öllum brautum vallarins. Tekið við hugmyndum um breytingar og úrbætur. Kosið verður um viðurkenningar fyrir verkefnið “Braut í fóstur”.
Kaffi-Sel verður með veitingasöluna opna þennan dag frá kl. 17.00 með sérstakt tilboð í tilefni fundarins. GF hvetur félaga sína til að nýta sér veitingaþjónustu Kaffi-Sels fyrir fundinn.
Komum saman og eigum skemmtilega stund í aðdraganda vormánaða.
Stjórn GF
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
