Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2017 | 12:00

Gestir streyma til Írlands í brúðkaup Rory og Ericu – Brúðkaupsnóttin verður í bátshýsi

Frægir gestir streyma til Írlands, en brúðkaup nr. 2 á heimslistanum, Rory McIlroy og bandarískrar heitkonu hans Ericu Stoll fer fram þar í dag, 22. apríl 2017.

Fremstur í flokki hinna frægu er Stevie Wonder sem sagður er munu syngja í brúðkaupinu auk annarra skemmtikrafta og vina skötuhjúanna. Þegar hann kom til Írlands brá hann sér í símaverslun og þar er hann m.a. hafa sagt hversu fallegt Írlandi væri, en kalt!

Stevie Wonder við komuna til Írlands

Stevie Wonder við komuna til Írlands

Meðal annarra frægra gesta eru Niall Horan, Ed Sheeran, leikarinn Jamie Dornan og hljómsveitarmeðlimur Coldplay, Chris Martin.

Sagt er að fyrir brúðkaupið mun Rory þurfa að punga út litlar £200,000 (u.þ.b. 28 milljónir íslenskra króna).

Rory og verðandi eiginkona hans Erica munu verja brúðkaupsnóttinni í bátshýsi við Ashford kastala þar sem nóttin kostar              £ 3.500,- (490.000,- íslenskra króna).

Sjá má myndir af bátshýsinu hér að neðan:

Bátshýsið þar sem Rory og Erica verja brúðkaupsnóttinni

Bátshýsið þar sem Rory og Erica verja brúðkaupsnóttinni

Bátshýsið með Ashford kastala í bakgrunni

Bátshýsið með Ashford kastala í bakgrunni

Rúmið í bátshýsinu við Ashford kastala

Rúmið í bátshýsinu við Ashford kastala

Eftir athöfnina og veisluna má slaka á í þessu glæsimarmarabaðkeri

Eftir athöfnina og veisluna má slaka á í þessu glæsimarmarabaðkeri