Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2018 | 10:00

GBO: Valdís og Unnsteinn klúbbmeistarar 2018

Meistaramót Golfklúbbs Bolungarvíkur (GBO) fór fram á Syðridalsvelli, dagana 10.-11. ágúst sl.

Þátttakendur í ár, sem luku keppni voru 8 en 15 voru skráðir í meistaramótið. Spilað var í einum opnum flokki.

Keppnisform var höggleikur án fogjafar.

Klúbbmeistarar GBO 2018 eru þau Valdís Hrólfsdóttir og Unnsteinn Sigurjónsson.

Heildarúrslit í Meistaramóti GBO eru eftirfarandi:

1 Unnsteinn Sigurjónsson GBO 6 F 41 42 83 12 77 83 160 18
2 Páll Guðmundsson GBO 10 F 41 43 84 13 83 84 167 25
3 Wirot Khiansanthia GBO 8 F 43 43 86 15 84 86 170 28
4 Runólfur Kristinn Pétursson GBO 6 F 42 40 82 11 92 82 174 32
5 Orri Örn Árnason GO 10 F 47 47 94 23 95 94 189 47
6 Valdís Hrólfsdóttir GBO 25 F 51 55 106 35 93 106 199 57
7 Gunnar Guðberg Samúelsson GBO 33 F 48 53 101 30 107 101 208 66
8 Eygló Harðardóttir GBO 21 F 57 62 119 48 112 119 231 89

Í aðalfréttaglugga: Unnsteinn Sigurjónsson og Valdís Hrólfsdóttir.  Mynd: Í einkaeigu