Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2016 | 13:50

GB: Kristvin ráðinn íþróttastjóri

Kristvin Bjarnason, PGA golfkennari, hefur verið ráðinn íþróttastjóri Golfklúbbs Borgarness.

Kristvin kemur til með að hafa umsjón með uppbyggingu á barna- og unglingastarfi GB.

Kristvin verður einnig til reiðu með almenna kennslu fyrir félaga GB og annarra sem vilja nýta krafta hans á Hamarsvelli.

Kristvin er 44 ára, fæddur 19. október 1971.