Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2012 | 20:55

GB: Gullhamrinum frestað til 29. júlí vegna ónógrar þátttöku

Þeir hjá Golfklúbbi Borgarness sendu frá sér svohljóðandi tilkynningu um frestun á einu flottasta kvennamóti landsins: Gullhamrinum, sem fram átti að fara á Hamarsvelli, í Borgarnesi á morgun:

Því miður þurfum við að fresta Gullhamrinum vegna ónógrar þátttöku.

Nýja dagsetningin er sunnudagurinn 29. júlí.

Þær konur sem skráðu sig í rástíma á morgun eru enn skráðar fyrir honum (almenn skráning) þótt ekkert sé mótið.

Þeim konum utan GB sem skráðu sig ætlum við að bjóða velkomna á völlinn (frítt) ef þær kæra sig að mæta, annars væri æskilegt að afskrá sig eða láta vita í skála 437-2000 eða til formanns kvennanefndar 437-1121.“