
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2012 | 22:30
GA: Þórir læknir fór holu í höggi á Króknum
Þórir Vilhjálmur Þórisson, læknir, (GA), fór holu í höggi á 3.braut, þ.e. „Veðramótum“ á Hlíðarendavelli í gær, laugardaginn 30.júní 2012. Atburðurinn átti sér stað á Norðurlandsmótaröðinni, en í hollinu með Þóri voru þeir Víðir Steinar Tómasson (GA) og Hjörtur Geirmundsson (GSS).
Draumahöggið kom á 12. holu hringsins sem er 149 metrar og sló Þórir með 6 járni. Boltinn skoppaði einu sinni á flötinni og hvarf síðan. Upphaflega hélt Þórir að kúlan hefði farið yfir flötina og leitaði því þar að henni. Víðir sagðist hins vegar hafa séð hana fara í holuna og athugaði hvort kúlan væri þar, og reyndist svo vera.
Þetta er í fyrsta skipti sem Þórir fer holu í höggi.
Golf 1 óskar Þóri innilega til hamingju með draumahöggið!
Heimild: gagolf.is
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1
- apríl. 10. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Illugadóttir —-– 10. apríl 2023
- apríl. 10. 2023 | 13:00 Masters 2023: Jon Rahm: „Þessi var fyrir Seve“
- apríl. 10. 2023 | 00:20 Masters 2023: Sam Bennett hlaut silfurbikarinn
- apríl. 9. 2023 | 23:00 Master 2023: Jon Rahm sigraði!!!
- apríl. 9. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hörður Hinrik Arnarson – 9. apríl 2023