![](https://www.golf1.is/wp-content/uploads/2014/01/cool-golf-carts-08-630x420.jpg)
GA: Sumarleiga á golfbílum
Golfklúbbur Akureyrar í samstarfi við Bílaleigu Akureyrar ætlar að bjóða kylfingum sem þurfa á golfbíl að halda að staðaldri í sínum golfleik, sumarleigu á golfbíl hjá klúbbnum. Leigan tryggir kylfingum aðgang að golfbíl í allt sumar.
Kylfingar geta keypt kort sem þeir eru þá skráðir fyrir og þeir einir geta nýtt, korthöfum er þó sjálfsagt að bjóða öðrum kylfingum með sér í bílinn. Það þarf að bóka bílana með dags fyrirvara og mun GA reyna að tryggja að ávallt sé bíll til staðar, þó sú staða geti komið upp að það þurfi að hliðra til rástímum ef margir bílar eru í útleigu viðkomandi dag. Einhverja daga gæti sú staða komið upp að engir golfbílar séu til taks en GA mun eftir fremsta megni reyna að koma í veg fyrir að það gerist.
Golfbílar og golfhjól eru mikil fjárfesting og vill GA með þessi móti koma til móts við sína félaga þar sem sífellt fleiri eru farnir að notast við svona farartæki í sínum golfleik, m.a. vegna heilsubrests. Með þessu þurfa kylfingar ekki að fara í fjárfestingu sjálfir ásamt því að þurfa ekki að hugsa um geymslu fyrir bílana eða hjólin sem og annað viðhald.
Verðið fyrir sumarleigu á golfbíl er 70 þúsund krónur.
Þeir kylfingar sem áhuga hafa á því að leigja sér bíl í sumar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Ágúst í síma 8577009 eða á agust@gagolf.is
Heimild: gagolf.is
- júlí. 26. 2024 | 23:45 Evrópumót einstaklinga: Íslandsmeistarinn spilar ein íslensku keppendanna lokahringinn
- júlí. 26. 2024 | 23:30 Íslandsmót golfklúbba: GA Íslandsmeistari í 2. deild kvenna
- júlí. 26. 2024 | 23:30 Afmæliskylfingar dagsins: Guðmundur Arason og Lucinda Grímsdóttir – 26. júlí 2024
- júlí. 25. 2024 | 21:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erla Pétursdóttir -25. júlí 2024
- júlí. 25. 2024 | 20:30 PGA: Horschel dro sig úr 3M Open
- júlí. 25. 2024 | 20:00 Sports Illustrated með umfjöllun um Arctic Open á Akureyri
- júlí. 24. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Björn Ólafur Ingvarsson – 24. júlí 2024
- júlí. 24. 2024 | 11:00 GKB: Brynhildur og Andri Jón klúbbmeistarar 2024
- júlí. 24. 2024 | 09:00 Íslandsmótið 2024: Aron Emil hlaut Björgvinsskálina
- júlí. 24. 2024 | 07:00 GSE: Lovísa Huld og Hrafn klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 19:00 GVS: Heiður Björk og Helgi klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 17:50 GE: Halldóra Guðríður og Magnús klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 17:00 Íslandsmótið 2024: Hulda Clara sú fyrsta sem fær Guðfinnubikarinn
- júlí. 23. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Harris English —- 23. júlí 2024
- júlí. 23. 2024 | 12:06 Opna breska 2024: Hvað var í sigurpoka Xander Schauffele?