Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2017 | 17:00

GA: Staðan á Jaðri í dag

Á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar (GA) má lesa eftirfarandi frétt:

Þessi vetur hefur verið snjóléttur okkur golfurum til mikillar ánægju 🙂

Staðan á Jaðri er því heilt yfir bara nokkuð góð. Það var byrjaður að myndast klaki á flestum flötum vallarins í kringum jól og áramót og er hann núna að mestu leyti farinn.

Steindór, Gussi og Biggi fóru af stað í byrjun síðustu viku með gatarann og unnu á klakanum á þeim flötum sem hann var hvað mestur og skilaði það virkilega góðum árangri í hlýindunum í gær.

Eins og staðan er núna eru flatir 4, 6, 14 og 16 með nokkuð af klaka á sér og er áætlunin að fara af stað á morgun og vinna á honum.

Aðrar flatir eru að mestu leyti alveg auðar og líta virklega fallega út.“

Heimild: GA