Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2014 | 14:00

GA: Orri Björn og Sigurður H. Ringsted sigruðu á Opnunarmótinu – Sólveig Erlends fékk ás!

Á laugardaginn 24. maí 2014 fór fram Opnunarmót Jaðarsvallar.  Það fór fram í dag í fínu veðri og það voru rétt um 60 kylfingar sem tóku þátt og skemmtu sér vel.

Svo gerðist sá skemmtilega atburður í dag að hún Sólveig Erlendsdóttir fór holu í höggi á 18 braut og er þetta í fyrsta skipti sem hún fer holu í höggi.

Óskar Golf 1 henni kærlega til hamingju með inngönguna í Einherjaklúbbinn!

Keppnisfyrirkomulag dagsins var höggleikur með og án forgjafar ásamt því að veitt voru verðlaun fyrir að vera næstur holu á fjórðu og elleftu braut.

Úrslit dagsins má sjá hér að neðan:

Höggleikur með forgjöf:

1. sæti.  Orri Björn Stefánsson á 62 höggum nettó.

2. sæti. Svanlaugur Jónasson á 66 höggum nettó.

3. sæti.  Viðar Valdimarsson á 68 höggum nettó.

 

Höggleikur án forgjafar:

1. sæti. Sigurður H. Ringsted á 80 höggum (betri á seinni níu)

2. sæti. Víðir Steinar Tómasson á 80 höggum.

3. sæti. Vigfús Ingi Hauksson á 81 höggi (betri á seinni níu).

 

Næstur holu á fjórðu braut:  Jónas Jose Mellado. 1,85 m.

Næstur holu á elleftu braut: Rúnar Antonsson. 2,59 m.

 

Hægt er að nálgast vinningana á skrifstofu GA.