Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2021 | 20:00

GÁ: Sigríður Lovísa og Björn klúbbmeistarar 2021

Meistaramót Golfklúbbs Álftaness (GÁ) fór fram dagana 8.-10. júlí 2021.

Þátttakendur voru 43 og kepptu þeir í 5 flokkum: höggleik með og án forgjafar í karla, kvenna og unglingaflokkum og punktakeppni í öldungaflokki.

Völlurinn skartaði sínu fegursta og veðrið var ágætt, hlýtt en dálítið hvasst.

Keppendur skemmtu sér vel og nutu heimabakaðra veitinga frá kvennanefndinni. Það er vonandi hefð sem er komin til að vera.

Klúbbmeistarar GÁ 2021 eru þau Sigríður Lovísa Sigurðardóttir og Björn Halldórsson.

Sjá má helstu úrslit í öllum flokkum hér að neðan:

1. fl. karla án/fgj
1. Björn Halldórsson
2. Kjartan Matthías Antonsson
3. Einar Georgsson

1. fl. karla með/fgj
1. Samúel Ívar Árnason
2. Kjartan Matthías Antonsson
3. Björn Halldórsson

Konur án/fgj
1. Sigríður Lovísa Sigurðardóttir
2. Eyrún Sigurjónsdóttir
3. Björg Jónína Rúnarsdóttir

Konur m/fgj
1. Sigríður Lovísa Sigurðardóttir
2. Björg Jónína Rúnarsdóttir
3. Eyrún Sigurjónsdóttir

2. fl. karla án/fgj
1. Anton Kjartansson
2. Ingólfur T. Bachman
3. Ásgeir Bjarni Ásgeirsson

2. fl. karla með/fgj
1. Ingólfur T. Bachman
2. Ásgeir Bjarni Ásgeirsson
3. Anton Kjartansson

Unglingar án/fgj
1. Björn Breki Halldórsson
2. Óliver Elí Björnsson
3. Sveinn Ísak Guðmundsson

Unglingar m/fgj:
1. Sveinn Ísak Guðmundsson
2. Björn Breki Halldórsson
3. Óliver Elí Björnsson

Öldungaflokkur:
1. Sveinbjörn T. Steingrímsson
2. Ögmundur Gunnarsson
3. Bragi Guðmundsson