Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2015 | 19:00

GA: Jónas með milljónahögg!!!

Nú rétt í þessu var Jónas Þór Hafþórsson stórkylfingur úr GA að fara holu í höggi á 18. braut á Jaðri.

Jónas er að keppa í Arctic Open og svo vel vill til að það var 1. milljón í boði frá Sjóvá fyrir þann kylfing sem fyrstur færi holu í höggi á 18. braut.

Jónas hefur því unnið sér inn 1. milljón og óskar Golf1 honum til hamingju með það!

Jónas mun svo afhenda við fyrsta tækifæri Hollvinasamtökum spítalans á Akureyri 500 þúsund krónur af upphæðinni.

Heimild: GA