Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2015 | 14:00

GA: Jólahlaðborð 11. des n.k.

Laugardaginn 11. desember ætlar Jón Vídalín að vera með jólahlaðborð fyrir GA félaga í golfskálanum á Jaðri.

Hefst hlaðborðið klukkan 19:00 og er verðið einungis 5900 krónur á mann.

Hér að neðan má sjá matseðilinn:

Forréttir
Síldartvenna
Jógúrt og epla síldarsalat
Grafinn og reykt lax í hunangssósu
Sjávaréttapaté
Sveitapate
Kryddsoðin Önd í Cesar salati og balsamick
Tvíreykt hangikjöt

Aðalréttir:
Jurtakryddað Lambalæri
Hangikjöt
Sykurgljáður hamborgarhryggur
Stökk purusteik með beikoni og lauk
Kalkúnn

Meðlæti:

Heit sósa, gljáðar kartöflur, heimalagað rauðkál,

grænar baunir, maísbaunir, ferskt salat, Waldorfssalat,

rúgbrauð, laufabrauð, smjör, uppstúfur

Eftirréttir:
Ris a la mande
Ostakaka með ferskum ávöxtum
Súkkulaðikaka
Karmellusósa og Ávaxtasósa

Pantanir fara fram hjá Jóni Vidalín í síma 897 0162