Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2017 | 21:00

GA: Dúddisen völlurinn opnaður

Klukkan 13:00, þann 14. júlí 2017  í sló Stefán Haukur ‘Dúddisen’ Jakobsson fyrsta höggið á nýjum par 3 holu velli GA félaga, sem ber nafnið Dúddisen.

Dúddisen er búinn að vera meðlimur í Golfklúbbi Akureyrar gríðarlega lengi og spilar nánast daglega á Jaðarnum. Hann átti ekki í neinum vandræðum með að slá flott högg þrátt fyrir mikla pressu áhorfenda.

Þess má til gamans geta að þegar Akureyrarvöllur var vígður í knattspyrnu rétt um 1950 spilaði Stefán Haukur í vígsluleiknum sem var viðureign KA og Þórs. Skemmst er frá því að segja að Dúddisen skoraði eina mark leiksins beint úr aukaspyrnu og var þetta því ekki fyrsta vígslan sem gengur svona glimrandi vel hjá kallinum.

Texti: GA