Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 11. 2023 | 11:00

Meistaramót 2023: Andrea Ýr og Heiðar Davíð klúbbmeistarar GA

Meistaramót, annars elsta golfklúbbs landsins, Golfklúbbs Akureyrar,  (GA – stofnaður 19. ágúst 1935) –  Akureyrarmótið – fór fram dagana 6.-9. júlí 2023.

Klúbbmeistarar GA 2023 eru þau Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Heiðar Davíð Bragason.

Heiðar Davíð og Andrea Ýr klúbbmeistarar GA 2023. Mynd: GA

Þátttakendur í ár voru 115 og kepptu þeir í 15 flokkum.

Þetta er 4. klúbbsmeistaratitill Andreu Ýr, en hún hafði mikla yfirburði í meistaraflokki kvenna.

Í meistaraflokki karla var spennan gríðarleg og varð að koma til 3 holu umspils, um hvor þeirra, Heiðar Davíð eða Örvar, myndi hampa klúbbmeistaratitlinum í lokinn. Fór svo að Heiðar Davíð hafði betur.

Í lokahófið mættu 80 kylfingar í veislumat og fögnuðu skemmtilegu móti, sem fram fór í mikilli veðurblíðu.

Sjá má öll úrslit Akureyrarmótsins inn í Golfboxinu með því að SMELLA HÉR: 

Helstu úrslit í Akureyrarmótinu 2023 voru sem hér segir:
Meistaraflokkur kvenna:
1.sæti: Andrea Ýr Ásmundsdóttir 73-73-78-76 +16
2.sæti: Lana Sif Harley 86-83-85-86 +56
3.sæti: Kara Líf Antonsdóttir 85-86-81-91 +59

Meistaraflokkur karla:
1.sæti: Heiðar Davíð Bragason 75-73-75-79 +18 (vann í umspili)
2.sæti: Örvar Samúelsson 72-70-80-80 +18
3.sæti: Víðir Steinar Tómasson 76-76-80-74 +22

1.flokkur kvenna:
1.sæti: Eva Hlín Dereksdóttir 95-90-85-86 +72

1. flokkur karla:
1.sæti: Ólafur Kristinn Sveinsson 76-78-77-84 +31 (vann í bráðabana)
2.sæti: Anton Ingi Þorsteinsson 70-84-80-81 +31
3.sæti: Jón Orri Guðjónsson 81-87-74-80 +38
3.sæti: Heiðar Kató Finnsson 82-82-79-79 +38

2. flokkur kvenna:
1.sæti: Guðrún Sigurðardóttir 91-100-93-96 +96 (vann í bráðabana)
2.sæti: Lísbet Hannesdóttir 91-95-102-92 +96
3.sæti: Björg Ýr Guðmundsdóttir 10-92-100-96 +106

2. flokkur karla:
1.sæti: Richard Eiríkur Taehtinen 95-82-82-81 +56
2.sæti: Aðalsteinn Helgason 87-87-90-89 +69
3.sæti: Helgi Gunnlaugsson 92-89-88-88 +73

3. flokkur kvenna:
1.sæti: Kristveig Atladóttir 112-103-114-111 +156
2.sæti: Sólveig Sigurjónsdóttir 113-108-113-111 +161
3.sæti: Oddný Steinunn Kristinsdóttir 105-115-132-111 +179

3. flokkur karla:
1.sæti: Hólmgrímur Helgason 96-89-92-86 +79
2.sæti: Hermann Hrafn Guðmundsson 85-94-95-93 +83
3.sæti: Valgeir Bergmann Magnússon 93-88-94-94 +85

4. flokkur kvenna:
1.sæti: Anna Bergrós Arnarsdóttir 123+120+121+116 +196
2.sæti: Ragnheiður Sveinsdóttir 125-121-116-125 +203

4. flokkur karla:
1.sæti: Árni Örn Hólm Birgisson 100-91-97-98 +102
2.sæti: Stefán Bjarni Gunnlaugsson 99-101-95-97 +108
3.sæti: Stefán Sigurður Hallgrímsson 103-98-103-96 +116
3.sæti: Jón Arnar Emilsson 102-97-96-105 +116

5.flokkur kala:
1.sæti: Kristinn Hólm Ásmundsson 111-109-112-111 +159
2.sæti: Ómar Pétursson 116-131-116-100 +179
3.sæti: Ágúst Jón Aðalgeirsson 152-131-125-123 +247

Öldungar konur 50+
1.sæti: Guðrún Sigríður Steinsdóttir 85-90-94 +56
2.sæti: Hrefna Magnúsdóttir 90-88-93 +58
2.sæti: Guðlaug María Óskarsdóttir 89-95-87 +58

Ölduingar karlar 50+
1.sæti: Ólafur Auðunn Gylfason 75-75-68 +5
2.sæti: Torfi Rafn Halldórsson 76-75-84 +22
3.sæti: Eiður Stefánsson 82-76-83 +28

Öldungar karlar 70+
1.sæti: Guðmundur E. Lárusson 86-87-82 +42
2.sæti: Örn Ingvarsson 95-88-90 +60
3.sæti: Símon Magnússon 95-91-94 +67

14 ára og yngri:
1.sæti: Bryndís Eva Ágústsdóttir 79-80-79 +25
2.sæti: Egill Örn Jónsson 80-83-83 +33
3.sæti: Ágúst Már Þorvaldsson 91-75-81 +34