Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1 Fylgist með Valdísi Þóru á US Women´s Open HÉR:
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur leik í dag á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Mótið fer fram á Trump National Golf Club, Bedminster, N.J. og stendur það yfir í fjóra daga.
Mótið er eitt af fimm risamótum hvers árs á LPGA mótaröðinni og komst Valdís inn í mótið með góðum árangri á úrtökumóti sem fram fór á Englandi í júní.
Valdís Þóra verður í ráshóp með Yan Liu frá Kína og áhugakylfingnum Dylan Kim í ráshóp fyrstu tvo dagana. Þær hefja leik kl. 14:20 að staðartíma eða 18:20 að íslenskum tíma (Valdís fer út eftir 3 tíma frá þeim tíma sem þessi frétt er skrifuð – Fylgist með!!! – Á þessum tíma þ.e. kl. 15:20 að íslenskum tíma eru Shanshan Feng og Lydia Ko í forystu; báðar á 6 undir pari og eiga eftir að spila 5 holur!!! Ljóst er að skor verða lág). Á föstudaginn hefja þær leik kl. 8:35 að staðartíma eða 12:35 að íslenskum tíma.
Golfsambandið mun fylgjast með gangi mála hjá Valdísi í dag og miðla upplýsingum á Twittersíðu GSÍ hér fyrir neðan.
Hér má sjá tvít Golfsambands Íslands um gengi Valdísar Þóru SMELLIÐ HÉR:
Hér má fylgjast með stöðunni á skortöflu á US Women´s Open SMELLIÐ HÉR:
Hlynur Geir Hjartarson, þjálfari Valdísar Þóru, verður kylfuberi hennar í mótinu en hann er jafnframt einn af þjálfurum hennar. Tómas Freyr Aðalsteinsson, íþróttasálfræðingur, er einnig í þjálfarateymi Valdísar og er hann mættur á keppnissvæðið til aðstoðar.
„Við förum inn í mótið með það að markmiði að slá eitt högg í einu og njóta þess að vera á einu stærsta golfmóti heims. Völlurinn ætti að henta Valdísi vel, hann er að sjálfsögðu mjög erfiður með háum karga og hraðinn á flötunum er gríðarlegur. Bara alveg eins og við mátti búast á US Open velli,“ segir Hlynur Geir en mótið fer fram á einum af mörgum golfvöllum sem eru í eigu Donald Trump Bandaríkjaforseta. Búist er við því að hann mæti á svæðið og er öryggisgæslan á vellinum gríðarleg að sögn Hlyns.
„Umgjörðin um þetta mót er engu lík og ekkert sem við Valdís höfum upplifað áður. Þetta er allt mjög stórt. Við höfum náð góðum æfingum hérna og leikið æfingahringi – þar sem Valdís sló fullt af góðum höggum,“ sagði Hlynur Geir Hjartarson þjálfari og aðstoðarmaður Valdísar Þóru Jónsdóttur við golf.is í gær.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
