Ragnheiður Jónsdóttir | september. 13. 2013 | 21:59

Furyk á 59 á BMW Championship!!!

Bandaríski kylfingurinn Jim Furyk, sem ekki var valinn í Forsetabikarsliðið af Fred Couples átti sannkallaðan draumahring á BMW Championship, 3. móti FedEx Cup umspilsins.

Hann lék golfvöll Conway Farms, þar sem mótið fer fram á hvorki fleiri né færri höggum en sögulegum 59 höggu , en  aðeins 5 kylfingum á PGA Tour hefir áður tekist að ná því skori í móti.

Frammistaða Furyk er því meira en stórglæsileg!!!  Hann er samtals búinn að spila á samtals 11 undir pari líkt og Brandt Snedeker og leiða þeir tveir því í mótinu.

Á 59 hring sínum sem er 12 undir pari og nýtt vallarmet á Conway Farms, fékk Furyk 1 örn, 11 fugla, 5 pör og 1 skolla.

Zach Johnson er einn í 3. sæti aðeins 3 höggium á eftir á samtals 8 undir pari. Fjórða sætinu deila síðan 6 kylfingar á samtals 6 undir pari, heilum 5 höggum á eftir þeim Furyk og Snedeker en þeirra á meðal eru Tiger og Jordan Spieth, sem vallinn var í Forsetabikarsliðið. Spennandi helgi framundan!!!

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag BMW Championship SMELLIÐ HÉR: