Fuglastríðið í KPMG-bikarnum skilaði 1 milljón til Reykjadals – Pressuliðið sigraði Landsliðið
Pressuliðið, undir frábærri aðstoðarstjórn Ragnhildar Sigurðardóttur hafði betur gegn landsliðinu í KPMG-bikarnum sem fram fór við framúrskarandi aðstæður á Grafarholtsvelli í dag. Þar áttust við úrvalslið áhuga – og atvinnukylfinga og landsliðin sem valin voru fyrir verkefnin á Evrópumótunum sem fram fara í byrjun júlí. Keppendur léku vel við góðar aðstæður og sumarbúðirnar í Reykjadal nutu góðs af því.
Keppnisfyrirkomulagið í KPMG-bikarnum er sótt í hefðir Ryderkeppninnar og leikinn var holukeppni. Sex fjórmenningsleikir fóru fram þar sem tveir voru saman í liði og léku þeir einum bolta til skiptis. Fimm tvímenningsleikir fóru fram þar sem tveir kylfingar áttust við.
Pressuliðið hafði betur 6 ½ – 4 ½.
Fyrir hvern fugl í KPMG-bikarnum rann ákveðinn upphæð til styrktar sumarbúðunum í Reykjadal. Alls safnaðist ein milljón kr. en keppendur náðu alls 79 fuglum. Margrét Vala Marteinsdóttir tók við fjárhæðinni fyrir hönd Reykjadals. Síðast þegar slíkt var gert í KPMG-bikarnum safnaðist rúmlega hálf milljón kr.
Árlega koma um 300 börn og ungmenni í Reykjadal yfir tímabil sem spannar sumarið og helgardvalir á veturna. Sumarbúðirnar hafa það að leiðarljósi að gefa þeim börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í sumarbúðir líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra.
Landslið ı Pressulið – úrslit:
4 ½ – 6 ½
Leikur 1. Fjórmenningur.
Landslið Hlynur Bergsson GKG – Tumi Hrafn Kúld GA. 2/1 sigur.
Pressulið: Hákon Örn Magnússon GR – Sigurþór Jónsson.
Leikur 2. Fjórmenningur.
Landslið: Björn Óskar Guðjónsson GM – Henning Darri Þórðarson GK. 2/0 sigur.
Pressulið: Emil Þór Ragnarsson GKG – Birgir Björn Magnússon GK.
Leikur 3. Tvímenningur.
Landslið: Gísli Sveinbergsson GK.
Pressulið: Egill Ragnar Gunnarssons GKG. 3/2 sigur.
Leikur 4. Fjórmenningur.
Landslið: Ragnhildur Kristinsdóttir GR – Anna Sólveig Snorradóttir GK. 6/4 sigur.
Pressulið: Berglind Björnsdóttir GR – Saga Traustadóttir GR.
Leikur 5. Fjórmenningur.
Landslið: Karen Guðnadóttir GS – Heiða Guðnadóttir GM.
Pressulið: Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG – Helga Kristín Einarsdóttir NK. 2/1 sigur.
Leikur 6. Fjórmenningur.
Landslið: Haraldur Franklín Magnús GR – Andri Þór Björnsson GR. 1/0 sigur.
Pressulið: Stefán Már Stefánsson GR – Benedikt Sveinsson GK.
Leikur 7. Fjórmenningur.
Landslið: Axel Bóasson GK – Rúnar Arnórsson GK.
Pressulið: Aron Snær Júlíusson GKG – Ólafur Björn Loftsson GKG 2/1 sigur
Leikur 8. Tvímenningur.
Landslið: Sunna Víðisdóttir GR.
Pressulið: Signý Arnórsdóttir GK. 6/5 sigur.
Leikur 9. Tvímenningur.
Landslið: Kristján Þór Einarsson GM.
Pressulið: Þórður Rafn Gissurarson GR 6/5 sigur.
Leikur 10. Tvímenningur.
Landslið: Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK. jafnt.
Pressulið: Valdís Þóra Jónsdóttir GL. jafnt.
Leikur 11. Tvímenningur.
Landslið: Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR.
Pressulið: Birgir Leifur Hafþórsson GKG 5/3 sigur.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
