Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2012 | 20:45

Fred Couples og Nick Price verða fyrirliðar í Forsetabikarnum 2013

Fred Couples verður fyrirliði bandaríska liðsins í Forsetabikarnum 3. árið í röð. Fred mætir nýjum fyrirliða í Alþjóðaliðinu, sem kemur til með að reyna að hafa betur gegn liði hans.

Nick Price frá Zimbabwe, sem sigraði hefir á risamótum þrívegis er nýr fyrirliði Alþjóðaliðsins 2013. Hann tekur við af Greg Norman, sem hefir verið fyrirliði Alþjóðaliðsins síðastliðin tvö skipti.

Fred Couples er ásamt Jack Nicklaus sá eini sem gegnt hefir fyrirliðastöðunni þrisvar sinnum. Bandaríkjamenn hafa unnið Forsetabikarinn í bæði skiptin, sem Fred hefir verið fyrirliði, þ.á.m. á síðast ári á Royal Melbourne.

Nick Price spilaði 5 sinnum í Forsetabikarnum, sem er mesta leikreynsla fyrirliða í Forsetabikarnum, í báðum liðum. Síðasta tók Price þátt í Forsetabikarnum í  Suður-Afríku og þá var jafnt á með liðunum.

Forsetabikarkeppnin fer næst fram í Muirfield Village 3.-6. október 2013.

Heimild: CBS Sports