Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2014 | 14:00

Frægir kylfingar: Michael Jordan segir Obama lélegan kylfing – Myndskeið

Í viðtali við kunningja sinn Ahmad Rashad, á Back9Network, var stjörnukörfuboltastjarnan Michael Jordan spurð að því hvert væri draumahollið.

Þetta er svona frekar „standard“ viðtalsspurning, sem flestir kylfingar, sem teknir eru í viðtal eru látnir svara alls staðar í heimsgolfpressunni.

Og svar Jordan var svona frekar „standard“ til að byrja með: „Arnold Palmer„.  Nú,  hann var líka ansi fljótur að grínast með að hann myndi ekki spila við Rashad.

En síðan verður hreinskilnin kannski heldur mikil fyrir smekk sumra.

Jordan velur Barack Obama, Bandaríkjaforseta næst í draumaholl sitt, þar sem hann hafi aldrei spilað við forsetann.

Síðan dregur hann það til baka  – kallar forsetann „hack“ (á íslensku golfmáli „sá sem heggur í viðinn“ þ.e. slær þung högg) og „það myndi fara allur dagurinn í að spila við hann.“

Rashad spyr hvort hann vilji virkilega láta við þetta sitja og Jordan svarar: „Ég sagði aldrei að hann væri ekki frábær forseti.  Ég er bara að segja að hann sé lélegur kylfingur.“

Sjá má myndskeiðið þar sem Jordan segir Bandaríkjaforseta lélegan (á ensku „shitty“ kylfing með því að SMELLA HÉR: