Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2017 | 23:30

Frábært líf milljarðaafmæliskylfingsins Rory

Nr. 2 á heimslistanum, hinn nýgifti Rory McIlroy, á 28 ára afmæli í dag, en hann er fæddur 4. maí 1989.

Hann hefir þrátt fyrir ungan aldur afrekað ýmislegt og öðlast milljarða íslenskra króna á golfleik sínum.

Hann hefir þegar sigrað 3 af 4 risamótum karlagolfsins og 4 risamót allt í allt.

Hann er einnig með risaauglýsingasamning við Nike sem er $200 milljóna (21,2 milljarða íslenskra króna) virði.

Og hann er nú andlit Nike og hefir tekið við sem slíkt af Tiger Woods.

Hann lifir lúxuslífi utan golfvallarins; býr í glæsihýsi í Flórída og á m.a. flottan bíl sem er  $400,000  virði (u.þ.b. 42 milljón íslenskra króna).

Rory hefir ekki sigrað í risamóti frá árinu 2014 en í fyrra, 2016, vann hann sér inn $ 9 milljónir (954 milljónir) í verðlaunafé á PGA og Evróputúrnum. 

Rory McIlroy

Hann er þegar þrátt fyrir ungan aldur í 6. sæti á peningalista þeirra sem unnið hafa sér inn mest yfir feril sinn – en enn sem komið er er það verðlaunafé samtals $ 67,5 milljónir (eða 7.2 milljarðar íslenskra króna). 

Rory McIlroy

Í þessu öllu er ekki meðtaldar þær milljónir sem hann fær fyrir að koma fram við allskyns tækifæri.

Rory McIlroy

Það er talið að hann hljóti $ 35 milljónir (u.þ.b. 3.7 milljarða íslenskra krónar) í auglýsingagreiðslur einar sér. 

Nr. 2 á heimslistanum Rory McIlroy búinn að halda uppi heiðri Evrópu í Rydernum 2016!

Stærsti samningurinn er við Nike, sem er  $200+ milljóna virði (21,2 milljarða íslenskra króna). 

Rory

Með allan þennan pening hefir hann nú efni á að fara oftar í klippingu!!!