Forsetabikarinn 2019: Fyrstu orð Tiger e. sigurinn!!!
Matt Kuchar setti niður 5 feta (u.þ.b. 2 metra) fuglapútt á 17. holunni í leik sínum gegn Louis Oosthuizen og tryggði liði Bandaríkjanna 1/2 stigið sem þörf var á til þess að sigra í Forsetabikarnum á Royal Melbourne.
Kuchar var skiljanlega í 7. himni þegar hann fór yfir á 18. holu. Aðrir liðsfélagar hans, sem lokið höfðu leikjum sínum föðmuðu hvern annan en allt loft var úr vonsvikna Alþjóðaliðinu.
Sjónvarpsupptökuvélum og míkrófóni var troðið í andlitið á fyrirliða Bandaríkjamanna, Tiger Woods og hann beðinn um fyrstu orð eftir sigurinn.
„Okkur tókst þetta saman,“ sagði Tiger með tárin í augunum. „Við komum hingað sem liðsheild. Liðsfélagar mínir og strákarnir mínir spiluðu allir vel.“
Þetta andartak og orð eins eitilharðasta keppnismanns í yfir 2 áratugi (Tiger) snart alla.
„Ég hef grátið, næstum alltaf þegar við höfum unnið bikar,“ hélt Tiger fram. „Ég hef gert það í langan tíma.“
Aðstoðarfyrirliðarnir Fred Couples og Steve Stricker nutu þess báðir að sjá Tiger tapa sér svolítið. Couples lýsti sjálfum sér og Stricker sem „væluskjóðum“ þannig að það væri nú næs að hafa smá kompaní svona einu sinni.
„Ég elska það að sjá aðra hrærða og gráta,“ sagði Stricker, „sérstaklega Tiger Woods.“
Couples bætti við: „Faðmlagið sem hann gaf öllum var svo innilegt. Hann er góður maður og það er gaman að vera í liði með honum.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
