Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2016 | 09:00

Fleiri „stór nöfn“ taka þátt í Opna skoska

Fyrirliði liðs Evrópu í Ryder bikarnum, Darren Clarke, og kylfingarnir Luke Donald og Lee Westwood hafa varpað stjörnuglansi sínum á Aberdeen Asset Management Scottish Open eða Opna skoska, sem mun fara fram á Castle Stuart Golf Links, dagana 7.-10. júlí n.k.

Aðrir sem taka þátt í mótinu og voru búnir að tilkynna þátttöku eru fimmfaldur risamótasigurvegarinn Phil Mickelson, sigurvegari Opna bandaríska 2010, Graeme McDowell, nr. 6 á heimslistanum Henrik Stenson og hetja Evrópu í Ryder bikarnum 2014,  Jamie Donaldson.

Þetta er í 34. sinn sem Opna skoska fer fram og vinningsfé mótsins er í hærra kantinum eða £3.25 milljónir (u.þ.b. 591,5 milljónir íslenskra króna).

Clarke, 47 ára, á enn eftir að sigra í mótinu en hann hefir tekið þátt í 21 skipti, en hefir þó þrívegis verið í 2. sæti þ.e. 2003, 2005 og 2010.

Clarke mun einnig nota mótið sem upphitun fyrir 145. Opna breska, sem fer fram viku seinna í Royal Troon golfklúbbnum.

Clarke lyfti s.s. mörgum er í fersku minni Claret Jug á Royal St George’s 2011, og spilaði á Castle Stuart vikunni áður.

Clarke sagði m.a: „Skotar eru svo ástríðufullir varðandi golf og í mótinu taka alltaf þátt sterkir kylfingar, þannig að mig langar til að bæta Opna skoska á ferilsskránna.“