Fannar Ingi Steingrímsson, GHG. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2012 | 16:44

Fannar Ingi lauk keppni í 3. sæti í Finnlandi!!!

Fannar Ingi Steingrímsson úr Golfklúbbi Hveragerðis var aldeilis að spila gott golf á Finnish International Junior Championship í Vierumäki í Finnlandi.  Hann lauk keppni á 3. hring í dag á 75 höggum en var þar áður búinn að spila á 80 höggum fyrsta dag og svo glæsihring í gær á 2 undir pari, 70 högg!!!   Það er aldrei að vita hvað hefði gerst ef Fannar Ingi hefði spilað aðeins betur 1. daginn, því sá sem var í 2. sæti í strákaflokki, Anti-Jussi Lintunen var aðeins 3 höggum á undan Fannari Inga.  Sá sem sigraði, Finninn Oliver Lindel, sigraði nokkuð örugglega á 5 undir pari. Samtals spilaði Fannar Ingi á 9 yfir  pari, 225 höggum (80 70 75) og lenti í verðlaunasæti, þ.e. 3. sætinu, sem er stórglæsilegt hjá Fannari Inga!

Fannar Ingi hefir nokkra reynslu af því að keppa erlendis, en hann hefir á undanförnum árum m.a. keppt á US Kids mótunum í Bandaríkjunum, s.s. lesa má í nýlegu viðtali Golf 1 við Fannar Inga SMELLIÐ HÉR: 

Henning Darri Þórðarson, GK. Mynd: Golf 1

Henning Darri Steingrímsson úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði stóð sig líka vel, lauk leik í 11. sæti á samtals 21 yfir pari, samtals 237 höggum (79 81 77). Þetta var góður árangur hjá Henning Darra, sem búinn er að standa sig vel í sumar á Unglingamótaröð Arion banka. Sjá má nýlegt viðtal við Henning Darra með því að SMELLA HÉR: