
Fannar Ingi lauk keppni í 26. sæti
Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, tók þátt í Callaway Junior World Golf Championship, sem fram fór í Morgan Run Resort and Club, í Kalíforníu, dagana 15.-19. júlí 2013. Aðeins elstu krakkarnir leika 4 hringi, en Fannar Ingi sem keppti í flokki 13-14 ára stráka, lék 3 hringi.
Keppnisvöllurinn var 6.450 yarda (5898 metra) og spilaðist aðeins lengri í mótvindi sem var og þóttu Fannari Inga m.a. par-4 brautirnar heldur langar í vindinum.
Í gær, 3. mótsdag, lokahringinn lék Fannar Ingi á 1 yfir pari, 72 höggum og lék því samtals á 4 yfir pari, 217 höggum (74 71 72).
Glæsilegur árangur þetta hjá Fannari Inga en hann lauk keppni í 26. sæti af 170 keppendum!!!
Í ár voru þátttakendur í Callaway Junior World Golf Championship 1250 frá 40 ríkjum Bandaríkjanna og 56 löndum alls staðar að úr heiminum. Mótið er gríðarlega sterkt og tóku menn á borð við Tiger og Ernie Els þátt í því á yngri árum og stóðu uppi sem sigurvegarar!
Til þess að sjá úrslitin eftir lokahringinn hjá Fannari Inga SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024