
Evróputúrinn: Westy kylfingur ársins 2020!
Lee Westwood (Westy) hlaut titilinn „Leikmaður ársins“ árið 2020 á Evrópumótaröð karla.
Þetta er í 4. sinn sem hann hlýtur þennan titil og nú eftir að verða stigameistari 47 ára!
Þetta er 27. keppnistímabil Westy á Evróputúrnum og eftir að hann sigraði á Abu Dhabi Championship varð hann fyrsti kylfingurinn til þess að sigra mót á 4 ólíkum áratugum.
Hann lauk 2020 með því að verða stigameistari Evróputúrsins í 3. sinn – og 20 árum eftir að hann vann fyrst það sem nú kallast stigameistaratitill.
„Mér er þetta mikill heiður og ég er virkilega upp með mér að hafa verið valinn kylfingur ársins á Evrópumótaröð karla þar sem samkeppninn um þennan titil er mjög hörð,“ sagði Westy, sem einnig hlaut þennan heiður árin 1998, 2000 og 2009.
Westy hrósaði jafnframt Evróputúrnum fyrir að geta haldið mót á þessu erfiða ári Corona faraldursins.
Auk þess að spila tók Westy beint þátt í mótahaldinu beint með því að vera gestgjafi á British Masters í júlí þessa árs.
- janúar. 18. 2021 | 00:30 PGA: Na sigraði á Sony Open
- janúar. 18. 2021 | 00:01 Thomas missir Ralph Lauren sem styrktaraðila
- janúar. 17. 2021 | 21:00 GA: Lárus Ingi kylfingur ársins 2020
- janúar. 17. 2021 | 20:00 Tiger: „Hún brosir ekki núna!“
- janúar. 17. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birnir Valur Lárusson – 17. janúar 2021
- janúar. 17. 2021 | 07:00 PGA: Brendan Steele leiðir f. lokahringinn á Sony Open
- janúar. 16. 2021 | 20:00 Eru Phil og Tiger vinir?
- janúar. 16. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2021)
- janúar. 16. 2021 | 19:30 DeChambeau forðast að ræða tengsl sín við Trump
- janúar. 16. 2021 | 18:00 Ingi Þór Hermannsson heiðraður á Íþróttahátíð Garðabæjar
- janúar. 16. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Kristján Þór Gunnarsson – 16. janúar 2021
- janúar. 16. 2021 | 08:00 PGA: Taylor tekur forystuna í hálfleik
- janúar. 15. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sirrý Hallgríms — 15. janúar 2021
- janúar. 15. 2021 | 09:00 PGA: 3 efstir & jafnir e. 1. dag Sony Open
- janúar. 15. 2021 | 08:00 Angel Cabrera handtekinn af Interpol í Brasilíu