Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2013 | 14:25

Evróputúrinn: Tiger og Rory komust ekki í gegnum niðurskurð í Abu Dhabi – Justin Rose efstur þegar mótið er hálfnað

Þeir, sem fengu mest greitt fyrir bara það að mæta og þeir sem mesta athyglin beindist að eru báðir úr leik á fyrstu mótum þeirra á dagskránni 2013 Abu Dhabi HSBC Golf Championship.

För þeirra Rory McIlroy og Tiger Woods til Abu Dhabi var afar sneypuleg.  Heimsins besti, Rory McIlroy spilaði á samtals 6 yfir pari, 150 höggum (75 75) og var 4 höggum frá því að komast í gegnum niðurskurð. Tiger stóð sig litlu skár, spilaði á 3 yfir pari, 147 höggum (72 75) og var 1 höggi frá því að komast í gegnum niðurskurð.

Justin Rose virðist finna sig einstaklega vel í eyðimörkinni og eru þegar farin að sjást viðurnefni um hann á borð við „Desert-Rose“ í erlendum golffréttamiðlum, sem blómstri í eyðimörkinni.  Rose er búinn að spila á samtals 8 undir pari, 136 höggum (67 69) og hefir 1 höggs forystu á þá Thorbjörn Olesen, Jamie Donaldson og Gonzalo Fdez-Castaño, sem allir eru búnir að spila á samtals 7 undir pari, 137 höggum.

Skyldi þeim hjá Nike ekki finnast þeir hafa gert miklu betri „díl“ við Olesen?

Til þess að sjá stöðuna á Abu Dhabi HSBC Golf Championship þegar mótið er hálfnað SMELLIÐ HÉR: