
Evróputúrinn: Tiger og Robert Rock efstir í Abu Dhabi eftir 3. dag.
Loksins…. gaman að skrifa stöðufrétt þar sem Tiger er í efsta sæti. Tiger og Robert Rock deila efsta sætinu á -11 undir pari, samtals 205 höggum; Tiger (70 69 66) og Rock (69 70 66) eftir 3. dag Abu Dhabi HSBC Golf Championship.
Rory McIlroy, 22 ára, myndi deila efsta sætinu með hinum tveimur hefði hann ekki fengið 2 högga víti fyrir að snerta sandinn við 9. flöt í gær á 2. hring, en hann er nákvæmlega 2 höggum á eftir, í 3. sæti ásamt 3 öðrum kylfingum: Svíanum Peter Hanson, Ítalanum Fracesco Molinari og Skotanum Paul Lawrie.
Tiger grínaðist eftir hringinn í dag að það væri „frábært að vera laus við hann“ eftir að hafa spilað við Rory í 3 daga í röð og líka 9 holu æfingahring.
Svo sagði hann: „Ég var bara stöðugur. Ég gerði ekki mikið rangt. Ég gerði ekki mikið rétt.“
„Sex fuglar hlóðust upp, ég var bara aðferðafræðilega að sjá um bissnessinn og að berjast.“
„Þessi völlur er nógu erfiður. Það er hægt að fá fugla, en allt getur mjög fljótt farið úrskeiðis líka. Ég verð enn að standa mig vel (á morgun).“
Það verður virkilega spennandi að sjá hver stendur uppi sem sigurvegari á morgun í Abu Dhabi.
Til þess sjá stöðuna á Abu Dhabi HSBC Golf Championship smellið HÉR:
- janúar. 20. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Silja Rún Gunnlaugsdóttir – 20. janúar 2021
- janúar. 20. 2021 | 10:00 Paulina Gretzky talar um samband sitt við DJ
- janúar. 20. 2021 | 09:30 Thorbjørn Olesen með Covid-19
- janúar. 20. 2021 | 07:30 Spurning hvort Olympíuleikarnir fari fram 2021?
- janúar. 20. 2021 | 07:00 Haraldur Júlíusson látinn
- janúar. 20. 2021 | 06:00 GM: 40 ár frá stofnun GKJ
- janúar. 19. 2021 | 19:00 GA: Veigar hlaut háttvísibikarinn 2020
- janúar. 19. 2021 | 18:00 Paige Spiranac segir Tiger ekkert skrímsli þrátt fyrir framhjáhald
- janúar. 19. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tommy Fleetwood – 19. janúar 2021
- janúar. 19. 2021 | 10:00 PGA: Jon Rahm dregur sig úr móti vikunnar
- janúar. 18. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðný María Guðmundsdóttir – 18. janúar 2021
- janúar. 18. 2021 | 12:00 Hver er kylfingurinn: Kevin Na?
- janúar. 18. 2021 | 01:30 PGA: Na sigraði á Sony Open
- janúar. 18. 2021 | 00:01 Thomas missir Ralph Lauren sem styrktaraðila
- janúar. 17. 2021 | 21:00 GA: Lárus Ingi kylfingur ársins 2020