Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2018 | 20:00

Evróputúrinn: Thomson efstur e. 1. dag Made in Denmark

Það er enski kylfingurinn Jonathan Thomson sem leiðir eftir 1. dag Made in Denmark mótsins, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum.

Thompson kom í hús á 8 undir pari, 64 höggum.

Þeir þrír sem þurfa að standa sig vel vegna Rydersins virðast vera eitthvað á taugum; Olesen lék á 1 yfir pari, 73 höggum og er í hættu að komast ekki í gegnum niðurskurð; Matthew Fitzpatrick er a.m.k. yfir niðurskurðarlínunni á sléttu pari, 72 höggum og Eddie Pepperell hefir spilað best þremenninganna – kom í hús á 2 undir pari, 70 höggum; en hann er með sjálfum fyrirliða Ryder Cup liðs Evrópu í ráshóp; Thomas Björn, sem lék á 2 undir pari, líkt og Pepperell.

Birgir Leifur Hafþórsson, er meðal keppenda, en er í einu af neðstu sætunum eftir 1. dag lék á 6 yfir pari, 78 höggum.

Til þess að fylgjast með gangi mála á Made in Denmark SMELLIÐ HÉR: