Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2018 | 18:00

Evróputúrinn: Tanihara á toppnum í Crans e. 2. dag

Það er japanski kylfingurinn Hideto Tanihara, sem leiðir í hálfleik á Omega European Masters.

Tanihara er búinn að spila fyrstu 2 hringina í mótinu á samtals 9 undir pari, 131 höggi (65 66).

Í 2. sæti 2 höggum á eftir Tanihara eru þeir Doug Ghim frá Bandaríkjunum, Daninn Lukas Bjerregaard og Matthew Fitzpatrick frá Englandi.

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Omega Europan Masters SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá stöðuna á Omega Europan Masters SMELLIÐ HÉR: