Evróputúrinn: Stephen Gallacher sigraði í Omega Dubai Desert Classic
Það var Skotinn Stephen Gallacher sem sigraði í Omega Dubai Desert Classic nú rétt í þessu.
Það voru hann og Richard Sterne frá Suður-Afríku sem voru í lokahollinu. Gallacher hafði yfirhöndina nær allan hringinn en á köflum voru þeir jafnir.
Gallacher spilaði á samtals 22 undir pari, 266 höggum (63 70 62 71). Á hringnum fékk hann m.a. glæsiörn á 16. braut sem þýðir að hann fékk a.m.k. 1 örn á hverjum hinna 4 hringja á mótinu. Auk arnarins fékk Gallacher 2 fugla, 12 pör og 3 skolla.
Stephen Gallacher er 38 ára; fæddur sama dag og annar golfsnillingur, golfgoðsögnin Gary Player, 1. nóvember 1974 og er nákvæmlega helmingi yngri en Player. Gary Player var mikið átrúnaðargoð Gallacher á yngri árum. Þetta er 3. sigur Gallacher sem atvinnumanns í golfi og 2. sigur hans á Evróputúrnum, en fyrsta sigurinn vann Gallacher 10. október 2004 þ.e. Dunhill Links Championship, en þar vann hann Graeme McDowell í umspili.
Gallacher var að vonum mjög ánægður eftir hringinn. Það er afmæli kylfusveinsins hans í dag og þeir ætla að halda upp á það saman. Aðspurður um hvernig stæði á örnunum hans 5 í mótinu sagði hann að það væri einmitt einhverjir svona töfrar sem þyrfti til að vinna mót í dag, skorin væru það lág.
Með sigrinum á Gallacher tækifæri á að spila á the Masters spili hann sæmilega næstu 3 vikur, en með sigrinum er hann þegar kominn á topp-60 á heimslistanum og þarf aðeins að lækka sig um 10 sæti í viðbót. Hann hefir aldrei spilað í The Masters, en sagði að sonur sinn yrði sérlega ánægður yrði af þessu.
Sterne lauk leik 3 höggum á eftir Gallacher á samtals 19 undir pari 269 höggum (62 70 66 71) – hann virtist pirraður á hringnum og var farinn að spyrja kylfusveininn sinn að því hvenær þeir flygu heim daginn eftir…. auðvitað bara sagt til þess að taka hugann úr þeim aðstæðunum sem hann var í – til þess að halda sér slökum og einbeittum – hjálpar stundum að tala um eitthvað allt annað, en það sem maður er að fást við!
Þriðja sætinu deildu Daninn Thorbjörn Olesen og Felipe Aguilar frá Chile; báðir á samtals 17 undir pari, 271 höggi Olesen (67 66 67 71) og Aguilar (68 68 66 69).
Fimmta sætinu deidu Lee Westwood og Marcus Fraser á samtals 16 undir pari. Robert Rock, Ricardo Santos og Steve Webster deildu síðan 7. sætinu.
Til þess að sjá úrslitin á Omega Dubai Desert Classic 2013 SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
